um atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.
Frú forseti. Hv. þm. Kristján Þórður Snæbjarnarson fór nú allfrjálslega með söguskýringuna núna. Ég er líklega sá, eða a.m.k. einn af þeim, sem hér er vísað til. Það sem ég sagði í pontu áðan er að ég hafi vísað á þingflokksformanninn minn. Eftir stendur það og það er það sem stendur upp úr, frú forseti, að hér voru bornar sakir á hv. þm. Sigríði Á. Andersen, þingflokksformann Miðflokksins, sem eru ekki réttar og þá ber að biðjast afsökunar á því. Það liggur fyrir hér og vitnað í tölvupóstssamskipti. Það liggur fyrir, og er algerlega kristaltært, að þingflokksformaður Miðflokksins gaf engin fyrirheit um að hér yrði ekki beðið um atkvæðagreiðslu eða að hér yrði sátt um lengingu þingfundar, bara ekki neitt. Þannig að hér eru menn farnir að fara ansi frjálslega með orð sem eru þó rétt nýfallin.