157. löggjafarþing — 85. fundur,  18. mars 2026.

fundur þingflokksformanna með forseta um atkvæðagreiðslu.

[19:36]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (ber af sér sakir):

Herra forseti. Þetta er auðvitað svolítið sérkennilegur fundur að verða en það er nú bara eins og stundum verður í þessu húsi. Ég ætla að fá að hafna því algjörlega og vísa því til föðurhúsanna að hér sé ég sem þingflokksformaður vísvitandi að segja ósatt til að klekkja á félögum mínum úr hópi þingflokksformanna. Ég hef átt ágætt og gott samstarf við alla þingflokksformenn. Stundum hefur hvesst, oft erum við ósammála en yfirleitt hefur þetta verið þannig að orð hafa bara staðið nokkuð ágætlega. Þannig að mér finnst þetta leiðinleg aðdróttun frá formanni Miðflokksins í minn garð og vísa þessu algerlega til föðurhúsanna. Ég skal hins vegar glaður gangast við því, eða ekki glaður en ég skal gangast við því að mér hafi hlaupið svolítið kapp í kinn hér áðan í framíköllum og biðja hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson og Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur velvirðingar á því hvað ég kallaði mikið fram í. Það er alveg sjálfsagt að gera það en mér hljóp svolítið kapp í kinn vegna þess að ég skil raunverulega ekki þessa atburðarás. En að við séum hér vísvitandi að segja ósatt og að ljúga upp á fólk, ég ætla ekki að sitja undir því.