157. löggjafarþing — 85. fundur,  18. mars 2026.

fundur þingflokksformanna með forseta um atkvæðagreiðslu.

[19:38]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (ber af sér sakir):

Virðulegi forseti. Ég ætla að biðla til skynsemi forseta. En ég ætla nú að byrja á að bera mér sakir varðandi það að hér hafi verið farið með rangt mál. Það er einfaldlega rangt og vont að vera borinn slíkum sökum. En ég vil biðla til skynsemi forseta að fara ekki í frekari leiki varðandi dagskrá þingsins. Hér er sameiginlegur skilningur þingflokksformanna um lengd þingfunda, fyrirkomulag þingfunda. Svo virðist vera að eftir samtöl milli minni hluta þingflokksformanna hafi Miðflokkurinn ákveðið að setja upp ákveðið leikrit, leikrit þar sem hann þykist vera að misskilja, þykist ekki vera með samkomulag á borðinu og óskar eftir atkvæðagreiðslu. Nú á að fara að tefja þingfundinn og ekki hleypa atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar áfram. Þetta er fyrirsjáanlegt. Þetta er hallærislegt. Hér eru þingmenn sem kalla eftir því að rædd séu þjóðþrifamál sem eru brýn fyrir þing og þjóð en hér er fólk einfaldlega í pólitískum leikjum í stað þess raunverulega að leyfa þingstörfum fram að ganga. Við sjáum í gegnum þetta, þjóðin sér í gegnum þetta. Ég bið hæstv. forseta að framkvæma atkvæðagreiðsluna sem var boðuð fyrr á fundinum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)