157. löggjafarþing — 85. fundur, 18. mars 2026.
fundur þingflokksformanna með forseta um atkvæðagreiðslu.
Fyrst vill forseti frábiðja sér að honum sé brigslað hér um að taka þátt í leikriti hvað fundarstjórn Alþingis varðar. Forseti telur jafnframt að það muni stytta töluvert þann tíma sem nauðsynlegur verður fram að atkvæðagreiðslu að gera hér tíu mínútna hlé og vill biðja þingflokksformenn að hitta forseta í forsætisnefndarherbergi hér á hæðinni fyrir neðan. — Fundi er frestað til 19:50.