Óyfirlesin bráðabirgðaútgáfa frá talgreini.

157. löggjafarþing — 85. fundur,  18. mars 2026.

lengd þingfundar.

[19:54]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um atkvæðagreiðslu):

Ég man ekki eftir því að forseta hafi verið rutt úr stóli hér með tilkynningu þingflokksformanns á fyrri stigum. Það gerist hér í dag. Það er margt nýtt að gerast í þessu húsi en það að heimila þingmönnum ekki að óska eftir fundarstjórn á tímapunkti sem þessum stenst ekki þær reglur sem við störfum eftir. Þeir stjórnarflokkar sem hér fara með völd nú um stundir hafa sýnt fundarsköpum, þingskapalögum, hefðum og venjum sérstaka vanvirðingu síðasta rúma árið en við erum hér á alveg nýjum stað að mér sýnist og var þó býsna langt gengið á síðasta þingi.

Virðulegur forseti. Þessi framhaldsfundur núna klukkan átta (Forseti hringir.) tæplega — ég vissi ekki betur en að ég ætti að vera hér í forsetastóli til a.m.k. átta. Það er áhugavert að annar forseti sé mættur til að stýra fundi og það byrjar með þeim hætti sem hefur birst okkur.