157. löggjafarþing — 85. fundur,  18. mars 2026.

lengd þingfundar.

[19:58]
Horfa

Forseti (Ingvar Þóroddsson):

68. gr. þingskapa hljóðar svo: „Jafnan er heimilt að gera stutta athugasemd um atkvæðagreiðslu, [um kosningu], 2) um fundarstjórn forseta og til þess að bera af sér sakir.“

Staðan er sú núna að klukkan er tvær mínútur í átta. Nokkrir þingmenn hafa óskað eftir því að taka til máls um atkvæðagreiðslu en svo atkvæðagreiðsla geti farið fram munu ekki allir geta tekið til máls sem eftir því hafa óskað og mun því atkvæðagreiðslan fara fram núna. [Háreysti í þingsal.]

Atkvæðagreiðslan stendur yfir.(Gripið fram í: Var talað um valdarán í sumar? )

Atkvæðagreiðslan stendur yfir. [Háreysti í þingsal.] (Gripið fram í: … Þetta er algjörlega fordæmalaust. )

Atkvæðagreiðslan stendur yfir. (Gripið fram í: Vér mótmælum. (Gripið fram í: Ætlarðu ekki að hleypa fólkinu í pontu sem er búið að óska eftir því? )(Gripið fram í: Um atkvæðagreiðslu. [Háreysti í þingsal.]))

Jafnan … (Gripið fram í.)

Samkvæmt 68. grein er jafnan heimilt að gera stutta athugasemd um atkvæðagreiðslu, um fundarstjórn og til þess að bera af sér sakir. (Gripið fram í: Um atkvæðagreiðsluna. )(Gripið fram í.)

Atkvæðagreiðslan stendur yfir. (Gripið fram í: … til háborinnar skammar. [Háreysti í þingsal.] (Gripið fram í: Kommon. (Gripið fram í: Stjórnleysi.)))

Hafa allir þingmenn greitt atkvæði? (Gripið fram í: Ekki ólöglegt. (Gripið fram í: Má ég … um atkvæðagreiðsluna … áður en ég greiði atkvæði?))

Atkvæðagreiðslan stendur yfir.

Þar sem ekki nægilega margir þingmenn greiða atkvæði nær tillagan ekki fram að ganga og er fundi slitið.