157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

mannabreytingar í nefndum.

[10:30]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseti vill tilkynna að borist hefur erindi frá þingflokki Viðreisnar um mannaskipti í nefndum, sbr. 1. mgr. 16. gr. þingskapa, á þá leið að Grímur Grímsson taki sæti sem aðalmaður í fjárlaganefnd í stað Eiríks Björns Björgvinssonar. Einnig að Sandra Sigurðardóttir taki sæti sem aðalmaður í velferðarnefnd í stað Gríms Grímssonar og Eiríkur Björn Björgvinsson verði varamaður í stað Söndru Sigurðardóttur í sömu nefnd. Að lokum að Eiríkur Björn Björgvinsson taki sæti sem aðalmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í stað Söndru Sigurðardóttur en hún verði varamaður í sömu nefnd í stað Eiríks Björns Björgvinssonar. Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.