staða ríkisfjármála og horfur í efnahagsmálum.
Frú forseti. Seðlabankinn fór ekki mjúkum höndum um ríkisstjórnina í gær í kjölfar vaxtahækkunar. Seðlabankinn kallar eftir meira aðhaldi, meiri stuðningi við það verkefni að ná niður verðbólgu. Í Morgunblaðinu í dag er haft eftir seðlabankastjóra, með leyfi forseta:
„Það eru náttúrlega margir fletir á ríkisfjármálum. Afgangur af ríkisfjármálum er bara einn þeirra og ekki endilega sá mikilvægasti. Það skiptir máli hvernig ríkið er fjármagnað vegna þess að ef þú skattleggur og eyðir peningunum í ríkisútgjöld, jafnvel þó að það sé ekki halli, þá örvar það hagkerfið. Þetta er eitthvað sem er kennt á grunnnámskeiðum í hagfræði.“
Tilvitnun lýkur í hæstv. seðlabankastjóra en ráðherrar í ríkisstjórninni, jafnvel þeir sem eru menntaðir hagfræðingar, hafa engu að síður tönnlast á því að það besta sem ríkisstjórnin geti gert til að ná niður verðbólgu og vöxtum sé að reka ríkissjóð réttum megin við núllið. Ekki núna heldur á næsta ári, árið 2027. Samt sem áður var það í sjónmáli að ná hallalausum ríkisfjármálum strax árið 2025 ef viljinn hefði verið fyrir hendi. En viljinn var ekki fyrir hendi. Vilji ríkisstjórnarinnar var að auka ríkisútgjöld í stað þess að vinna með það góða bú sem ríkisstjórnin fékk í arf frá fyrri ríkisstjórn.
Virðulegi forseti. Útlitið er ekki gott og aðstæðurnar hér núna eru ekki frýnilegar. Þess vegna er rétt að spyrja hæstv. ríkisstjórn og þar með hæstv. fjármálaráðherra: Ætlar hæstv. ríkisstjórn bara alls ekki að hjálpa Seðlabankanum með nokkrum hætti við að ná hér niður verðbólgu?