staða ríkisfjármála og horfur í efnahagsmálum.
Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir spurninguna. Það er auðvitað rétt sem hún segir, og vitnar þar með í seðlabankastjóra, að afgangur á fjárlögum er ekki það eina sem mælir áhrif ríkissjóðs á hagkerfið. Þess vegna er grundvallaratriði að það sem þessi ríkisstjórn hefur lagt áherslu á er að auka aðhaldsstigið og laga lánsfjárjöfnuð ríkisins. Það var gert á síðasta ári, það er gert á þessu ári, það verður gert á næsta ári. Mér þykir auðvitað mjög sérstök sú söguskýring hv. þingmanns að hér hafi verið dauðafæri til hallalausra fjárlaga fyrr í ljósi þess í fyrsta lagi að hún telur þau greinilega ekki eins mikilvæg og ég tel þau vera og í öðru lagi vegna þess að sú ríkisstjórn sem var hér á undan gerði ekki ráð fyrir að ná slíku hallaleysi fyrr en árið 2028. Það er mjög sérstakt að koma hér upp núna og segja að einhvern veginn hefðu hlutirnir gengið allt öðruvísi en þau hafi gert ráð fyrir að þeir myndu ganga; það eru einhvers konar eftiráskýringar sem ég botna ekkert í. Það er áfram langsamlega mikilvægast að ríkisfjármálin styðji þá vegferð að lækka verðbólgu og vexti. Það er gert með aðhaldi sem fyrri ríkisstjórnir gátu ekki sýnt, sem fyrri ríkisstjórnir gerðu aldrei. Það var halli á fjárlögum frá 2019. Það er þess vegna ákaflega furðulegt að standa hér og hlusta á skammir yfir aðgerðum sem verið er að grípa til sem aðrir gátu ekki gripið til.