staða ríkisfjármála og horfur í efnahagsmálum.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir síðara innleggið. Það er alls ekki rétt að ég hafi ekki svarað spurningunni, ég svaraði henni mjög skýrt. Ríkisstjórnin hefur lagt á það megináherslu að ná jafnvægi, að laga lánsfjárjöfnuð ríkisins. Það hefur bara verið meginverkefnið og í því hafa verið stigin risastór skref. Og þegar talað er um aðhaldsstig — það er alveg makalaust að heyra hv. formann Sjálfstæðisflokksins halda því fram að hér hafi verið meira aðhald þegar síðasta ríkisstjórn átti heimsmet í aðhaldsleysi á tímum Covid. Það er alveg ljóst að sá halli sem þá var skapaður er grunnurinn að því verðbólguvandamáli sem við stöndum frammi fyrir í dag. Þær aðgerðir voru of umfangsmiklar og þær stóðu of lengi. Þær stóðu inn í eitthvert mesta hagvaxtarár sem við höfum séð á síðari tímum, þvert ofan í allar kenningar um það hvernig eigi að stýra hagkerfi. Og koma svo hingað og skammast yfir þeim sem eru að þrífa upp eftir þig.