aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir spurninguna. Það er algerlega ljóst, og þeir sem fylgdust með og hafa fylgst með umræðu Seðlabankans í tengslum við vaxtaákvarðanir að undanförnu vita það, að það eru í sjálfu sér engar deilur um hver ástæða þessarar verðbólgu er. Eftirspurn í íslenska hagkerfinu er meiri en íslenska hagkerfið getur staðið undir. Viðbrögðin frá hendi ríkisins eru þau að stuðla að því að draga úr eftirspurn. Ég geri mér alveg grein fyrir því að stjórnarandstaðan hefur gaman af stórum tölum en þessi 143 milljarða tala sem oft hefur verið nefnd hér er auðvitað bara tilbúningur. Megnið af henni eru tilfærslur milli liða í rekstrarreikningi ríkisins vegna uppgjörsins á ÍL-sjóði og einfaldlega verðlagsuppfærslur.
Ég ætla samt ekki að gera lítið úr því að það skiptir miklu máli að ríkið sýni aðhald. Það er nákvæmlega það sem ríkið mun gera í þeirri fjármálaáætlun sem verður kynnt í næstu viku, auka enn frekar aðhaldið í rekstri hins opinbera. Það er það mikilvæga og líka að stuðla að því, og það er annað verkefni sem skiptir miklu máli, að ríkið sé ekki að gleypa upp fjármagn á markaði, laga lánsfjárjöfnuð ríkisins.
Varðandi aðrar aðgerðir þá er ljóst að ef við ætlum að vinna á því langvarandi vandamáli sem of há verðbólga hefur verið á Íslandi þá þurfum við að gera ákveðnar breytingar. Hér hafa verið umræður um að draga mögulega úr vægi verðtryggingar. Verðtryggingin er ákaflega óheppileg, sérstaklega eins og hún birtist í mælingum á verðlagi þar sem t.d. verðtryggðir húsaleigusamningar eru hluti af mælingu verðlags sem þýðir að hækkun á verðlagi leiðir til hækkunar á verðlagi. (Forseti hringir.) Aðrar aðgerðir sem kæmi til greina að skoða eru hlutir eins og að auka enn frekar þjóðhagslegan sparnað en hann er nú þegar mjög mikill á Íslandi.