157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

sviðsmyndir hagvaxtar í fjármálaáætlun.

[10:49]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir alveg ljómandi góða spurningu og stutta svarið við henni er auðvitað já. Það er einmitt þetta með trúverðugleikann sem er á einhvern hátt grunnurinn að vandamálinu. Þetta hefur lengi verið grunnurinn að vandamálinu. Það dylst engum í þessum sal sem ber saman vaxtastig á Íslandi og í þeim nágrannalöndum sem búa við svipuð skilyrði, eins og t.d. í Noregi og Svíþjóð, að vextir á Íslandi þurfa að hækka miklu meira — miklu meira — til þess að ná hliðstæðum áhrifum á eftirspurn eins og gerist í nágrannalöndunum. Að hluta til tengist þetta heimatilbúnum kerfum eins og t.d. útbreiddri notkun verðtryggingar sem gerir miðlunarferli peningastefnunnar mjög erfitt. Að hluta til tengist þetta trúverðugleika og trúverðugleiki er fyrirbæri sem tekur langan tíma að byggja upp. En það er held ég mjög mikilvægt að við sem erum í því starfi að þjónusta almenning séum saman í því verkefni að byggja upp þennan trúverðugleika. Það er ljóst að áhrif hagstjórnartækja á Íslandi eru minni heldur en í nágrannalöndunum. Það er líka ljóst að að hluta til er það vandamál tengt skorti á trúverðugleika.