157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

sviðsmyndir hagvaxtar í fjármálaáætlun.

[10:52]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir síðari spurninguna og ég tek undir að það er mjög mikilvægt að við bregðumst við þeirri stöðu sem komin er upp. Það er alveg ljóst hvað ríkisstjórnin mun gera. Ég fór yfir það í andsvörum mínum, bæði við hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur og hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson, þ.e. við munum auka aðhaldsstig í ríkisfjármálunum. Hitt er síðan annað mál, eins og glögglega kom fram í ræðu Þórarins Péturssonar seðlabankastjóra í gær, að grundvallarvandamálið er í sjálfu sér að laun hafa hækkað hér umfram þá innstæðu sem er til launahækkana. Þess vegna höfum við lagt ríka áherslu á virkt samtal við aðila vinnumarkaðarins um hvernig við getum sameiginlega fundið leiðir til að minnka þennan þrýsting; of mikil eftirspurn sem síðan hefur verið brugðist við með enn frekari launahækkunum leiðir auðvitað til enn erfiðari stöðu.