viðbrögð við verðbólgu og vaxtahækkunum.
Virðulegur forseti. Þegar hæstv. fjármálaráðherra var spurður að því í Morgunblaðinu í gær hvort hann muni í nýrri fjármálaáætlun draga úr eftirspurnarhlið ríkissjóðs til að þrýsta verðbólguhorfum niður, segir hæstv. ráðherra: „Já, það hefur auðvitað verið stefna þessarar ríkisstjórnar og ég hef ítrekað sagt það að okkar markmið er að styðja Seðlabankann í því að ná tökum á verðbólgunni og það munum við svo sannarlega gera.“ Svo mörg voru þau orð. En í umsögn Seðlabanka Íslands um launavísitölumálið, sem við erum að fara að greiða atkvæði um hér á eftir, segir, með leyfi forseta:
„Aðgerðin getur þannig aukið á verðbólguþrýsting á sama tíma og Seðlabankinn viðheldur þéttu taumhaldi peningastefnunnar til þess að koma verðbólgu í markmið. Áhrifin geta bæði verið bein þar sem auknar ráðstöfunartekjur bótaþega auka einkaneyslu og þar með eftirspurn sem þrýstir upp verðlagi og óbein ef hækkunin leiðir til ósættis á vinnumarkaði um bilið á milli bóta og launa þannig að launakröfur og kröfur um hækkun bóta aukist á víxl.“
Mig langar að spyrja hæstv. fjármálaráðherra, sérstaklega í ljósi þess að nú er verkalýðsforystan farin að tala um að forsendur kjarasamninga séu brostnar: Ætlar hæstv. ráðherra að fara gegn varnaðarorðum Seðlabankans, verkalýðsforystunnar, atvinnulífsins, helstu hagfræðinga landsins, Læknafélags Íslands og fjármálaráðs og halda áfram að kynda verðbólgubálið eins og gert var með hækkun vörugjalda? Eru það allir aðrir, almenningur í landinu og atvinnulífið, sem eiga að taka á sig byrðarnar og reyna að lækka verðbólguna en ekki hæstv. ríkisstjórn sem ætlar að halda áfram að kynda verðbólgubálið.