157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

viðbrögð við verðbólgu og vaxtahækkunum.

[10:56]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir spurninguna. Horfum á þetta verkefni eins og það er. Annars vegar eru það viðbrögð við verðbólgunni eins og hún er og hins vegar er það skipulag og fyrirkomulag ríkisútgjalda til lengri tíma. Það hefur komið fram ítrekað í tengslum við umræðu um téð launavísitölumál að áhrifa þessara kerfisbreytinga í svörtustu sviðsmyndum muni ekki gæta fyrr en eftir mörg ár þannig að ég held að ef það er markmiðið að bregðast við núverandi ástandi þá er það ekki einu sinni mat hagfræðinga að þetta séu aðgerðir sem breyti neinu.

Ég vil síðan segja að sé lagt mat á áhrifin sem þetta frumvarp hefði haft á þróun útgjalda og lágmarksbóta í örorkubótakerfinu undanfarna tvo til þrjá áratugi frekar en þeim ákvörðunum sem ríkisstjórnir fortíðarinnar hafa tekið, að þá væru bætur lægri í dag, þær væru lægri en þær eru núna. Ég skil algerlega pólitísku retoríkina sem hér kemur fram og ég er ekkert að gera athugasemdir við hana en þetta er ekki það sem mun setja ríkisfjármálin á hliðina á komandi misserum.