viðbrögð við verðbólgu og vaxtahækkunum.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari fyrirspurn. Nú er það þannig að þeir sem hafa fylgst með fjárlögum og almennri efnahagsumræðu á Íslandi lengur en bara síðustu tvö árin vita að hallarekstur hófst árið 2019. Covid kom ekki fyrr en ári síðar. Menn verða að geta lært af sögunni, ef við getum ekki tekið umræðu um það sem miður hefur farið í fortíðinni, hvernig í ósköpunum ætlum við að forðast að gera sömu mistök í framtíðinni? Mistökin voru að Covid-aðgerðirnar stóðu of lengi. Þær stóðu of lengi. Þær stóðu inn í tímabil þar sem töluverður hagvöxtur var og það varð til þess að Ísland eitt landa var með launavöxt í gegnum atvinnuleysistímabil sem kom í kjölfarið á Covid eða fylgdi Covid. (Forseti hringir.) Stuðningur, hvati frá ríkissjóði til að auka enn á eftirspurn meðan það voru (Forseti hringir.) launahækkanir. Þetta eru hagstjórnarmistök í hvaða bók sem er.
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir ráðherra og þingmenn á ræðutímann.)