stefna ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum.
Virðulegi forseti. Ég vil vísa hér til þeirrar umræðu sem hér fór fram áðan við hæstv. fjármálaráðherra í fyrirspurn þar sem hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson hafði orðið. Ef ég skildi ráðherra rétt þá staðfesti ráðherrann vissulega að hér séu einhver óveðursský á lofti í efnahagsmálum eða hin svartsýna sviðsmynd sé sú sem við erum að tala um og að stjórnvöld þurfi að vera tilbúin með viðbrögð, jafnvel aðgerðir, ef þróunin heldur áfram í þessa átt. En á sama tíma, virðulegi forseti, hefur hæstv. forsætisráðherra sagt mjög skýrt, m.a. í ræðu hér í þingsal 2. mars, með leyfi forseta:
„Planið mun virka. Vextir munu rata niður á við vegna þess að verðbólga mun rata niður á við því þetta plan mun virka vegna staðfestu þessarar ríkisstjórnar.“
Þetta fer nú ekki alveg saman að mínu mati. Annars vegar er viðurkennt að staðan sé erfið, að verðbólguþrýstingur sé áfram mikill og hugsanlega þurfi frekari viðbrögð og hins vegar er því haldið fram að planið haldi, það muni virka og það þurfi ekki að breyta um kúrs. Í gær sagði forsætisráðherra að ríkisstjórnin hefði freistast til að fagna of snemma. Nú hefði orðið bakslag.
Spurning mín til hæstv. fjármálaráðherra er því þessi: Hver er raunveruleg stefna eða svokallað plan ríkisstjórnarinnar núna í ljósi aðstæðna? Er það mat ráðherrans að planið standi óbreytt og að engu þurfi að breyta? Eða er það mat ráðherrans að nauðsynlegt kunni að verða að grípa til nýrra aðgerða á næstu vikum og breyta þannig um plan?