stefna ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir alveg ljómandi góða spurningu. Ef ég má leyfa mér, með leyfi forseta, að vitna í fyrrum forseta Bandaríkjanna, Dwight Eisenhower, þá er haft eftir honum: „Plans are worthless; planning is everything“.
(Forseti hringir.) (Forseti (ÞSv): Forseti bendir hæstv. ráðherra á að þessi orð er mjög auðvelt að þýða.)
„Plön eru gagnslaus, að plana er allt.“ Ég biðst afsökunar, forseti. [Hlátur í þingsal.] Þrátt fyrir ábendingar forseta verð ég að viðurkenna að mér finnst þetta hljóma betur á ensku frekar en í minni þýðingu. En þetta er raunverulega djúphyggið. Ég ætla samt að segja: Það sem hefur ekki breyst, svo ég svari spurningu hv. þingmanns, er að vandamálið sem við tókum við var of mikil eftirspurn miðað við þá getu sem hagkerfið hefur til að svara henni. Það er enn þá staðan þrátt fyrir þau óveðursský sem hafa hrannast upp. Viðbrögðin við því eru að ríkið dragi úr sinni eftirspurn og reyni þannig að stuðla að jafnvægi í hagkerfinu. Að því leyti eru óveðursskýin ekki að breyta stefnunni en þau gera auðvitað aðgerðirnar meira aðkallandi. Þannig að ef það er á einhvern hátt svar við spurningu hv. þingmanns þá er planið í sjálfu sér í eðli sínu það sama en orðið meira aðkallandi að því sé fylgt og fylgt mjög nákvæmlega.