157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

stefna ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum.

[11:05]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Það sló mann út af laginu, þessir enskutilburðir hæstv. ráðherra, verð ég að segja og sá sem hér stendur skildi hvorki upp né niður í svari ráðherra. En gott og vel. Samt sem áður þá finnst mér það vera þannig að heimilin og fyrirtækin í landinu eigi rétt á að vita hvort þetta núverandi plan sem unnið er eftir dugi óbreytt eða hvort við séum að sjá fram á frekari breytingar á því plani sem lagt var upp með. Fram undan er umræða um fjármálaáætlun og væntanlega er sú vinna á fullu í ráðuneyti hæstv. ráðherra og sömuleiðis í hæstv. ríkisstjórn. Það hlýtur að koma á daginn í þeirri fjármálaáætlun sem verður hér til umfjöllunar á vordögum að þar séu breytingar á því plani sem lagt var upp með því það getur ekki verið að við ætlum að halda svona áfram.