stefna ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir spurninguna. Ég hef sagt áður í þessum sal að kannski er mikil heppni að ég sé frekar hér en niðri í háskóla að kenna af því að mér virðist takast að láta misskilja mig ítrekað. Ég hélt að þetta væri til þess að gera mjög einfalt: Vandamálið, grunnurinn að verðbólgunni, og þetta kom skýrt fram í gær í erindum seðlabankastjóra, er of mikil eftirspurn, meiri eftirspurn en kerfið þolir. Það sem ríkið getur gert er að reyna að draga úr sinni eftirspurn eða sínum eftirspurnaráhrifum. Þetta hefur ekkert breyst sem þýðir að viðbrögðin eru enn þá þau sömu. Breytingarnar snúa kannski fyrst og fremst að því að taka stærri skref en annars hefðu verið tekin.