157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.

114. mál
[11:18]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér er verkstjórnin að störfum. Nú er búið að ná böndum á 148 fjölskyldur sem eru að reyna að bjarga sér —148 fjölskyldur. Hvaða áhrif hefur þetta á húsnæðismarkaðinn? Nákvæmlega engin. Þetta hefur bara engin áhrif. Í einhverja áratugi, og það vita það allir, hefur fólk, t.d. úti á landi, keypt húsnæði af ýmsum ástæðum, hefur viljað hjálpa börnunum sínum í námi, hugsanlega er um veikindi að ræða þannig að það þarf að vera mikið í Reykjavík. Fram til þessa hefur það getað hjálpað sér með því að leigja út íbúðirnar til að geta keypt þær, til að geta borgað fyrir þær. Nei, nei, nei, vinstri stjórnin lætur það ekki gera sig. Það verður auðvitað að taka á þessari ósvinnu. Núna þegar við erum að horfa upp á vextina og verðbólguna fara upp (Forseti hringir.) og allir eru að kalla eftir viðbrögðum frá ríkisstjórninni þá er þetta svarið. Nú á að taka á þessum 148 fjölskyldum sem eru að reyna að bjarga sér í þessu landi.