157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.

114. mál
[11:26]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það væri áhugavert að vita hvaða frumvarp hv. þm. Sigurjón Þórðarson var að tala um en hann er ekki að tala um þetta frumvarp. Hér koma hins vegar fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna og segja: Heyrðu, vandinn er skortstaða. Já, virðulegi forseti, það er vandinn og það er á ábyrgð ríkisstjórnarflokkanna sem hér hinum megin við götuna, í Vonarstræti, hafa borið ábyrgð á lóðaskorti í Reykjavík. Tökum á því. En það er ekki gert, virðulegi forseti. Það er nefnilega búið að finna upp hugtak sem menn nota hjá ríkisstjórnarflokkunum til að hækka skatta á alla. Hvað er það? Þetta er ekki venjulegt fólk. Þetta er ekki venjulegt fólk, eins og kom fram hjá hv. þingmanni. Þessar 148 fjölskyldur eru ekki venjulegt fólk.

Virðulegi forseti. Það þarf að skilgreina í lögum hvað ríkisstjórnin á við. Ríkisstjórnin er búin að hækka tekjuskatt á láglaunafólk með samsköttuninni, því að það er það sem verður fyrir því, (Gripið fram í.) það eru aðilarnar sem eru með lægri tekjurnar, (Forseti hringir.) Fjölskyldan, það hækkar skatturinn á þær. Og af hverju? Það er ekki venjulegt fólk.

Virðulegi forseti. Þessi vinstri stjórn er (Forseti hringir.) skatta- og skylduóð og er bara hækkandi skatta á allt það sem þeim dettur í hug og þegar þau rekur í vörðurnar og hafa ekki rök (Forseti hringir.) segja þau bara: Heyrðu, þetta er allt í lagi, þetta er ekki venjulegt fólk.