157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

almannatryggingar.

155. mál
[11:37]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Já, þetta mál er búið að fá mikla umræðu og gagnrýni og umsagnir á umliðnum mánuðum í gegnum velferðarnefndina og svo í þjóðfélaginu öllu, eins og við þekkjum. Það kom skýrt fram í upphafi frá þeim sem gagnrýndu þetta hvað mest að aðgerðin sem ætluð er til þess að koma til móts við þá sem verst eru staddir og mest þurfa á aðstoð að halda, sem allir eru sammála um að þurfi að fara í, sé allt of almenn. Það var kallað eftir frekari greiningu á áhrifum á tiltekna hópa en að þessi aðgerð væri of almenn. Það var niðurstaðan fyrir utan alls kyns aðra gagnrýni og umsagnir sem hafa komið fram um áhrif á efnahagsmál eins og farið hefur verið yfir, að ákveðnir hópar hafa lagt áherslu á að þetta geti dregið úr hvata fólks til að taka þátt í vinnumarkaðnum og svo mætti halda áfram að telja. En loforðaskiptastjórnin kemur þessu í gegn þrátt fyrir alla gagnrýnina sem komið hefur fram, (Forseti hringir.) sama hvað þetta mun kosta og hvaða áhrif þetta mun hafa á aðra hópa.