almannatryggingar.
Frú forseti. Þetta er sérstakt mál, illa unnið, illa undirbúið og umræðurnar hér í þingsal hafa ekki verið betri þegar meiri hlutinn hefur ekki getað svarað grundvallarspurningum um málið, þ.e. hvort frumvarpinu sé ætlað að skapa einhver réttindi fyrir fólkið sem þarf að reiða sig á þessar greiðslur eða, og þá í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, framsöguræðu hæstv. ráðherra þegar mælt var fyrir málinu, hvort þetta sé bara merkingarlaust orðagjálfur, að ríkisstjórnin geti sem fyrr ákveðið bæturnar eins og hentar hverju sinni þannig að það sé engin breyting. Einföldum spurningum um hvað þetta þýðir fyrir fólkið í landinu er ósvarað og ríkisstjórnin eða ólíkir hattar hennar tala í kross.
Eitt er þó víst og er eitthvað sem við getum öll verið sammála um og það er að frumvarpið er mjög ómarkviss og óskilvirk aðgerð til að lyfta greiðslum til fátækasta hópsins. Það þarf ekki að hafa mín orð fyrir því. Það er hægt að líta til umsagna ASÍ og nú síðast prófessors emerítusar, Stefáns Ólafssonar, sem staðfestir það. Hér er ekki farið vel með fé.