almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Þetta er vont frumvarp. Þetta er vont frumvarp af því það ræðst gegn þeim sem minnst hafa í samfélaginu. Það kyndir verðbólgubálið sem rýrir kaupmátt og getu þeirra sem minnst hafa og verst hafa það í samfélaginu. Það eru ekki bara þeir sem eru á bótum, það er líka vinnandi fólk á lægstu töxtunum. Hvaða aðgerðir hefur verið farið í, eins og á síðasta kjörtímabili, að setja á lægsta skattþrepið sem nýttist líka þeim sem eru á lægstu töxtunum, að vísitölutengja persónuafsláttinn? Það nýtist líka þeim sem eru á lægstu töxtunum. Við erum að kynda verðbólgubálið þvert ofan í ráð Seðlabankans, fjármálaráðs, Læknafélags Íslands, helstu hagfræðinga landsins, verkalýðsforystunnar og Samtaka atvinnulífsins. Það er fáheyrt að allir þessir aðilar séu sammála um að eitthvað eitt frumvarp sé slæmt og þegar verðbólgubálið heldur áfram að loga, (Forseti hringir.) virðuleg og hæstv. ríkisstjórn, þá eru það einmitt verðbólguhvetjandi frumvörpin ykkar sem halda áfram að kynda það bál.