157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

fullnusta refsinga.

514. mál
[13:52]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég myndi svara íslenska fanganum þannig: Þín bíður það hlutskipti að koma aftur út í íslenskt samfélag. Þetta eru ekki hliðstæð dæmi, þetta eru ekki hliðstæðar sögur. Það er ekki þannig að viðkomandi útlendingur afpláni styttri dóm og síðan bíði hans bara sólin úti og gott veður alla daga. Hans bíður brottvísun. Hans bíður endurkomubann. Hann á ekki tækifæri á reynslulausn vegna þess að hann er að fara úr landinu. Þetta eru ekki hliðstæð dæmi. Þetta er aðgerð til ársins 2027. Ég myndi hafa áhyggjur værum við að gera þetta að varanlegu úrræði, þá gæti ég séð sjónarmiðin í því, sannarlega, hvort skilaboðin væru tæp refsipólitísk. Þetta er tímabundin aðgerð. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að það sé, af því að við erum að spá í refsipólitískum skilaboðum, að það séu gríðarlega tæp refsipólitísk skilaboð að stjórnvöld hafi í heilan áratug, eins og við höfum gert, horft upp á þessa mynd versna og versna og talað um að við þurfum að byggja fangelsi. Það er alveg rétt. Ég er að koma inn með þessa tímabundnu leið. Ég átta mig alveg á því að það er hægt að sjá þetta með ólíkum gleraugum en ég held að kostirnir séu umtalsvert meiri en gallarnir og ég hræðist þetta ekki refsipólitískt.