fullnusta refsinga.
Frú forseti. Ég er að nálgast þetta verkefni úr ólíkum áttum. Ég er að horfa á löggæsluna, ég er að horfa á útlendingalögin. Hér erum við með frumvarp um breytingu á lögum um fullnustu refsinga. Við erum að fjölga fangelsisplássum. Jú, það má skoða hegningarlög en mér finnst við ekki alveg geta verið í Pírataleiðinni þar sem við erum alltaf bara að benda á vandamál og aldrei leggja lausnir á borðið. Hér er tímabundin aðgerð með ákveðinni lausn. Þetta er ekki stóra lausnin en þetta er svar. Þetta mun létta á kerfinu og þetta eru held ég sterk skilaboð út á við um það að við ætlum ekki að hýsa hér eða laða til okkar glæpamenn, skýr skilaboð um það. Ég skil hvað þingmaðurinn er að segja en dæmin eru ekki hliðstæð, þessi tvö dæmi sem hún nefnir. Við vitum það auðvitað líka að tvö brot sem t.d. varða nauðgun og fara fyrir dóm — málsatvik eru ekki alltaf nákvæmlega alveg eins. Þannig er það bara.