157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

fullnusta refsinga.

514. mál
[14:03]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Kannski fyrst aðeins um þessar áhyggjur af því hver skilaboðin séu og hvort þau kalli fram einhver viðbrögð. Það leiðir af sjálfu sér, af því að við erum að tala um 1. júlí 2027 og við vitum hvaða mál eru lengi að fara í gegnum kerfið, að þessi aðgerð, þetta frumvarp, verði það að lögum, mun nær eingöngu og fyrst og fremst ná til þeirra sem þegar hafa verið dæmdir eða eru komnir inn í kerfið. Þessi mögulega lagasetning var nákvæmlega engin ástæða fyrir ákvörðun þeirra fanga þegar þeir hófu sinn glæpaferil. Málið var þegar komið inn í kerfið. Þetta á sérstaklega við um alvarlegri brot. En þekkjandi það hvernig málsmeðferðartíminn er í réttarkerfinu, þá er þetta einfaldlega staðan, þ.e. hvaða mál þessi lagasetning mun ná utan um.

Íslendingafangelsi og útlendingafangelsi — það gilda ekkert sömu reglur um alla útlendinga heldur. Við erum að gera þetta í tilvikum þeirra sem eru að fara úr landi. (Forseti hringir.) Það gilda heldur ekki sömu reglur um alla Íslendinga því þeir eru innbyrðis ólíkir. Í einhverjum málum hafa menn farið í gegnum sakhæfismat. Við erum að opna miðstöð um öryggisráðstafanir (Forseti hringir.) í þeim efnum. Málin eru alltaf einstaklingsbundin og bundin einstaklingsmati.