157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

fullnusta refsinga.

514. mál
[14:17]
Horfa

Fida Abu Libdeh (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Takk fyrir yfirferðina hv. alþingismaður. Ég ætlaði bara aðeins að koma inn á ræðu hans í andsvari. Ég skil ekki af hverju tekið var dæmið úr fréttamiðli, sem er DV, um Palestínumenn. Ég sit hérna beint á móti þér. Þú mátt taka mig sem dæmi um fólk sem kemur hingað til Íslands og aðlagast menningunni, skapar verðmæti, menntar sig hér á landi, býr til nýja þekkingu, ég er í nýsköpunarfyrirtæki. Mér líður þannig að alltaf þegar eru tekin svona neikvæð dæmi þá hefur það áhrif á heildina. Ég spyr bara hv. þingmann: Er sérstök ástæða fyrir því að nefna Palestínumenn í neikvæðri mynd og araba yfirhöfuð og á hvaða forsendum er það byggt að við getum ekki aðlagast íslensku samfélagi?