fullnusta refsinga.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir framsögu fyrir þessu frumvarps sem við ræðum hér, frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fullnustu refsinga, þar sem lögð er til markviss úrræði til að bregðast við stöðu í fangelsum landsins. Frumvarpið varðar sérstaklega afplánun erlendra ríkisborgara sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi að lokinni afplánun og er það unnið í nánu samstarfi við Fangelsismálastofnun og aðrar lykilstofnanir.
Frú forseti. Erlendum ríkisborgurum hefur fjölgað mjög í íslenskum fangelsum undanfarin ár. Á sama tíma hefur töluverður fjöldi dóma fyrnst þar sem ekki hefur tekist að taka á móti dómþolum í fangelsum landsins og það er óhætt að segja að þessi hluti refsivörslukerfisins sem fangelsin eru standi frammi fyrir töluverðum áskorunum. Í árslok 2025 biðu vel á áttunda hundrað einstaklingar afplánunar eða um 100 einstaklingum fleiri en fimm árum áður. Á sama tíma fyrndust 75 óskilorðsbundir dómar en dómum sem fyrnast hefur fjölgað einnig undanfarin ár. Þetta er óviðunandi staða sem ekki er hægt að búa við.
Hæstv. dómsmálaráðherra hefur boðað að hafist verði handa við framkvæmdir við byggingu nýs fangelsis á Stóra-Hrauni innan skamms og er það vel og mun taka á sárasta vandanum og færa fangelsismál raunar inn í nútímann þar sem um er að ræða öryggisfangelsi. Meira en helmingur þeirra sem sitja í fangelsum hér á landi eða sæta gæsluvarðhaldi eru erlendir ríkisborgarar, margir hverjir án nokkurra tengsla við Ísland. Í sumum tilvikum hafa verið vistaðir einstaklingar af yfir 20 þjóðernum í einu fangelsi. Þetta gerir bæði þjónustu- og öryggismál flóknari og eykur álag á starfsfólk og kerfið í heild. Það er ljóst að fangelsisrými eru af skornum skammti og er nýting rýma með þeim hætti að rekstur fangelsa er ekki nægilega öruggur og rekstur ekki heilbrigður. Til einhverra aðgerða þarf að grípa.
Frumvarpið sem við ræðum hér felur í sér tvær meginbreytingar. Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir heimild til að veita erlendum föngum fyrr reynslulausn en nú er. Lagt er til að þeim föngum sem búið er að taka endanlega ákvörðun um að brottvísa frá landinu að lokinni afplánun verði heimilt að veita reynslulausn þegar einn þriðji refsitímans er liðinn í stað helmings eins og nú er. Þetta á aðeins við þegar brottvísun er endanlega staðfest á stjórnsýslustigi og því ljóst að viðkomandi muni yfirgefa landið þegar afplánun er lokið. Þá munu umræddir fangar fá endurkomubann á Schengen-svæðið séu viðkomandi brotamenn frá löndum utan þess svæðis.
Markmið þessa eru þríþætt. Í fyrsta lagi að tryggja að þeir sem ljóst er að munu ekki og eiga ekki að snúa aftur í íslenskt samfélag fari fyrr úr fangelsi og úr landi, stytta boðunarlista og skapa þannig pláss fyrir íslenska afplánunarfanga sem þurfa á úrræði um endurhæfingu að halda og að draga úr þeim verulegu rekstrarlegu og öryggistengdu áskorunum sem stafa af mjög fjölbreyttum og fjölþjóðlegum fangahópi. Þessi heimild er tímabundin og gildir til 1. júlí 2027, þ.e. að stytta þann tíma sem viðkomandi þarf að afplána í fangelsi.
Önnur meginbreytingin sem frumvarpið felur í sér er afnám heimildar til að afplána utan fangelsis þegar brottvísun liggur fyrir. Lagt er til að þeir sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi að afplánun lokinni geti ekki afplánað dóma á áfangaheimili eða undir rafrænu eftirliti. Ástæður þess eru augljósar; slík úrræði eru hönnuð til að aðstoða fólk við endurkomu í íslenskt samfélag en þessi hópur mun ekki snúa aftur þangað. Að auki þurfa umsækjendur að hafa fasta búsetu, atvinnu eða nám og tengsl við samfélagið, skilyrði sem þessi hópur getur almennt ekki uppfyllt.
Með þeim breytingum sem ákvæði frumvarpsins fela í sér verða reglur hér á landi betur í takt við það sem gildir á Norðurlöndunum þar sem sambærileg sjónarmið ráða för.
Frú forseti. Mannréttindi fanga og réttindi þeirra til samskipta við fjölskyldu eða aðra nákomna verða óskert. Hér er einungis verið að aðgreina milli tveggja ólíkra hópa sem eru í gjörólíkri stöðu; þeirra sem framið hafa brot og eiga hér framtíð og þeirra sem eiga ekki rétt til dvalar og verða að yfirgefa landið að afplánun lokinni. Samþykkt þessa frumvarps mun hafa þau áhrif að boðunarlistar styttast, færri dómar fyrnast, þrýstingurinn á fangelsiskerfið minnkar og hætta á félagslegri einangrun og öryggisáhættu innan fangelsa minnkar og unnt verður að veita föngum betri og markvissari þjónustu í fangelsum. Þetta eru ábyrg og nauðsynleg skref sem stuðla að skilvirkara fangelsiskerfi og tryggja að dómar séu fullnustaðir með viðeigandi hætti.
Með því frumvarpi sem við ræðum hér er tekið á erfiðum vanda sem birtist í fangelsum landsins, þ.e. að einstaklingum sem hingað hafa komið og drýgt refsiverð brot hefur fjölgað verulega. Oft er hér um að ræða einstaklinga sem tengjast með einum eða öðrum hætti skipulögðum afbrotahópum. Sú lausn sem hér er farin er sannarlega þannig að þar vegast á mikilvæg sjónarmið. Það er annars vegar að leitast við að létta á fangelsum landsins og hins vegar að stytta þann reynslutíma sem einstaklingar sem brotið hafa af sér þurfa að afplána í fangelsi áður en til reynslulausnar kemur. Að mínu mati er það svo að mat hæstv. dómsmálaráðherra, að stytta þann tíma sem erlendir borgarar, sem brottvísa á að lokinni afplánun, þurfa að sitja í fangelsi, er viðunandi og viðeigandi lausn á erfiðri stöðu.
Frú forseti. Ég vil að lokum benda á að undanfarið hefur hæstv. dómsmálaráðherra lagt fram nokkur frumvörp sem þétta lagaumgjörð sem varðað getur erlenda brotamenn. Sum þeirra hafa þegar verið samþykkt en önnur eru til meðferðar hjá hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Má í þessu sambandi nefna frumvarp sem tryggja á að farþegalistar flugfélaga berist viðeigandi yfirvöldum, frumvarp um afturköllun alþjóðlegrar verndar og frumvarp sem varðar skráningu brotamanna í Schengen-upplýsingakerfið svo einhver frumvörp séu nefnd. Allt eru þetta reglur sem gera það að verkum að auðveldara er að koma lögum yfir brotamenn sem hingað koma, oft ekki í öðrum tilgangi en að brjóta af sér.