fullnusta refsinga.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Grími Grímssyni fyrir hans ræðu og yfirferð í þessu máli. Þennan málaflokk þekkir hann nú líklegast mjög vel. Sjálfur sit ég með honum í allsherjar- og menntamálanefnd og við munum fá þetta mál til okkar til umfjöllunar. Ég er svona að byrja að kynna mér málið og sökkva mér að einhverju leyti niður í það. Hér erum við að reyna að leysa, tímabundið alla vega, þann vanda sem eru yfirfull fangelsi og leysa þann vanda sem þau skapa. En það sem ég velti fyrir mér, ef maður horfir svona á stærri myndina, er að dómar fyrir hin ýmsu brot, hver sem þau eru, hljóta að miðast við einhvern tíma sem samfélög hafa fundið út að sé við hæfi fyrir hvert brot til að leiðrétta eða betra menn innan veggja fangelsis eða í þeim úrræðum sem ríkið býður upp á þegar menn hafa brotið af sér. Þá skiptir í rauninni ekki máli hvaðan þeir koma því allir eru nú menn á endanum. Mig langar að spyrja hv. þingmann eða alla vega að eiga orðastað við hann um það, hann þarf kannski ekki að svara því, hvort það sé ekki ákveðið ábyrgðarleysi hjá okkur Íslendingum ef við ætlum að dæma einhvern í níu ára fangelsi og hann fer út eftir þrjú ár og þá er hann ekki búinn að vera þennan tíma sem samfélagið ætlast til að hann sé inni og hann fer þá bara annað. Það er svolítið eins og við séum með ruslið okkar og við hendum því bara yfir í garðinn hjá næsta manni. Er ekki eitthvað skrýtið við það í heildarsamhenginu? Það er brotið af sér innan okkar lögsögu, við dæmum og við gerum þetta en síðan erum við ekki tilbúin í raun að ganga alla leið í því að reyna betra einstaklinginn. (Forseti hringir.) Ég veit að þetta getur verið ákveðin siðferðisleg spurning en ég vildi eiga orðastað við hv. þingmann um þetta án þess að hann þurfi að svara þessu kannski alveg beint.