157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

fullnusta refsinga.

514. mál
[14:43]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir hans andsvar og í því fólst ekki bein spurning, meira ósk um vangaveltur. Ég tek undir með hv. þingmanni, við munum náttúrlega takast á hendur þetta frumvarp í meðförum hv. allsherjar- og menntamálanefndar. Markmið frumvarpsins snýr ekki að föngunum sjálfum. Markmiðið snýr að kerfinu eins og ég skil það. Það er verið að reyna að létta á kerfinu með því að gefa heimild til þess að tiltekinn hópur eða hópur með tiltekinn bakgrunn afpláni skemur áður en hann fær reynslulausn, það sé heimild til þess. Og eins og ég horfi á þetta núna, við upphaf þess að maður skoðar þetta mál, þá hygg ég að það sé viðunandi lausn og viðeigandi tímabundin lausn. Ég hygg að það gætu verið nokkrir tugir manna sem væri hægt að losa út úr fangelsum ef þetta frumvarp yrði að lögum, og myndi létta töluvert á kerfinu. Hitt álitaefnið, að fangelsisdómur og það að sitja í fangelsi eigi að verða til þess að menn verði kannski betri menn á eftir og þeir séu ekki búnir að ná nægilegum tíma á þremur árum í dæminu sem hv. þingmaður nefndi — það er auðvitað, eins og ég kannski tafsa hér á, álitaefni sem þarf að velta fyrir sér og garður nágrannans þarf kannski að taka við þessu. Það kom líka fram hjá hv. þm. Sigríði Á. Andersen að það er ákveðin hætta á því að menn sem skipuleggja fíkniefnainnflutning viti það að þröskuldurinn í úrræðum hér á landi sé lægri og þar af leiðandi geti menn komist upp með það.