fullnusta refsinga.
Virðulegur forseti. Þetta frumvarp lætur kannski ekki mikið yfir sér, þ.e. það er ekki umfangsmikið, en þó er það svolítið efnismikið að því leyti að það kveður á um nokkrar grundvallarbreytingar að mínu mati á fyrirkomulagi við veitingu reynslulausnar í íslensku réttarfari. Meginreglan í dag er sú að reynslulausn er hægt að veita föngum þegar þeir hafa afplánað tvo þriðju hluta refsitímans, það er meginreglan en undantekningar eru gerðar í tilteknum tilvikum, m.a. vegna glæpa sem ekki teljast alvarlegir. Það væru þá glæpir sem ekki varða morð eða stórfelldar líkamsmeiðingar og annað. Það er þá kveðið á um möguleika á reynslulausn eftir hálfan afplánunartíma. Það er reyndar líka opnað fyrir þann möguleika að veita reynslulausn eftir helming afplánunartímans jafnvel þótt um alvarlegan glæp hafi verið að ræða en þá þurfi að liggja fyrir því mjög persónulegar ástæður, framúrskarandi hegðun í fangelsi eða eitthvað slíkt, og líka gagnvart útlendingum ef það liggur fyrir að þeim hefur verið synjað um dvalarleyfi, þ.e. ef það liggur fyrir, eins og segir í gildandi lögum, ákvörðun Útlendingastofnunar um að fanga verði vísað úr landi að afplánun lokinni. Ég hygg að þessi undanþága hafi verið nokkuð oft veitt. Þetta er heimildarákvæði eins og nefnt hefur verið hér í ræðum, þetta er lagt undir mat Fangelsismálastofnunar. Ég hygg að það hafi verið oft notað og kannski eru þetta þær aðstæður sem hæstv. dómsmálaráðherra vísaði til þegar hún nefndi í sinni ræðu eða andsvari við einhvern hér á undan mér að staðan í dag væri sú að útlendingar væru að fá reynslulausn gjarnan fyrr en Íslendingar. Það kann að vera. Það hlýtur þá að byggja á þessu tilviki. — Hún kinkar hér kolli í salnum. Það er í sjálfu sér umhugsunarvert en ég hygg að Íslendingar, geti þeir sýnt fram á einhverjar persónulegar ástæður og fyrirmyndarhegðun, njóti líka þessarar heimildar. Og svo því sé haldið til haga þá er líka undantekning gerð vegna mjög ungra fanga, þeim er gefinn kostur á reynslulausn eftir einn þriðja afplánunartímans. Það kemur í sjálfu sér ekki til álita sérstaklega í þessu máli af því að hér er lagt til að veitt verði bráðabirgðaheimild til að veita fanga lausn til reynslu þegar einn þriðji hluti refsitímans er liðinn. Ákvæði þetta á að ná til allra dóma sem kveðnir hafa verið upp fyrir gildistöku ákvæðisins og eru komnir til fullnustu Fangelsismálastofnunar. Ég skil það þannig að þetta eigi við um alvarlega glæpi líka. Staðan í dag er sú að þeir sem hafa framið alvarlega glæpi geta þó ekki fengið reynslulausn, þeir þurfa að afplána helming tímans, en nú er verið að leggja til að það sé einn þriðji.
Þetta á bara við um erlenda fanga. Íslenskum föngum mun ekki standa þetta úrræði til boða. Ég geri athugasemdir við það á þessu stigi a.m.k., af því að ég sé ekki neina umfjöllun um þetta atriði sérstaklega í greinargerðinni, þ.e. hvernig það geti samrýmst jafnræðisreglu stjórnarskrár að íslenskir fangar þurfi að horfa upp á það mögulega að erlendum föngum verði hleypt úr fangelsi fyrr. Ég geri athugasemd við það að þessu leyti. Ég geri athugasemdir við það líka út frá kannski stefnumörkun almennt í þessum málum. Ég held að menn ættu að vera undir það búnir að ákvæði sem þetta gæti verið segull fyrir erlenda glæpamenn að koma hingað til að fremja afbrot, horfandi upp á það að þeir þurfi ekki að afplána ýkja lengi í íslensku fangelsi vegna þess að íslensk fangelsi hafa þrátt fyrir allt, þrátt fyrir þrengsli og annað í íslenskum fangelsum eða a.m.k. þrengsli á boðunarlistum, ekki verið mikil hindrun í augum erlendra glæpamanna. Ég leyfi mér að fullyrða að þurfi maður að afplána einhvers staðar í fangelsi þá sé Ísland trúlega eitt af þeim löndum þar sem best er að afplána í fangelsi þannig að ég held að verkefni stjórnvalda sé kannski að draga úr seglum, ef menn vilja nota fangelsin til þess eða refsistefnuna, að koma málum þannig fyrir að það dragi ekki að útlendinga umfram Íslendinga í þessum efnum. Ég nefndi það í andsvari að þeir sem eru í þeirri vafasömu atvinnugrein, ef svo mætti að orði komast, að flytja t.d. inn fíkniefni og þurfa að reiða sig á burðardýr — það verði kannski eftir þetta skynsamlegra fyrir þá að leita til erlendra burðardýra, það verði auðveldara að finna burðardýr frá útlöndum heldur en Íslendinga til að sinna þessum vafasama bransa, nái þetta frumvarp fram að ganga óbreytt.
Ég vil koma þessu á framfæri og bið hv. allsherjar- og menntamálanefnd að skoða þetta sérstaklega frá þessum ýmsu sjónarhornum. Markmið frumvarpsins er, og hæstv. dómsmálaráðherra leggur á það mikla áherslu, að það þurfi að stytta boðunarlista. Ég tek undir það, það er auðvitað ekki gott að það séu mörg hundruð manns, ríflega 700 heyrðist mér, sem eigi það yfir höfði sér að afplána dóma. Það er auðvitað ekki gott. Ég hins vegar velti því fyrir mér hvort menn þurfi ekki að líta til fleiri þátta í þessu samhengi, t.d. að horfast í augu við það að refsingar við fíkniefnabrotum hafa í gegnum tíðina og undanfarin ár verið að herðast og að mínu mati eru refsingar þar orðnar úr hófi fram í samanburði við alvarlega ofbeldisglæpi og jafnvel morð. Það ætti að vera stjórnvöldum umhugsunarefni hvort þessi harða refsistefna hafi þjónað einhverjum tilgangi eða hvort hún skilji bara eftir aukinn kostnað á herðum skattgreiðenda við að reka hér fangelsi; fæði, klæði og húsnæði fyrir útlenda glæpamenn. Ég held að það væri í það minnsta einnar messu virði að hæstv. ráðherra myndi skoða þetta. Ég myndi styðja hana í því og hvet hana áfram í því.
Ég velti því líka fyrir mér og það hefði verið gott að fá umfjöllun um það í greinargerð og ég bið hv. allsherjar- og menntamálanefnd að skoða það og koma aðeins inn á það í nefndaráliti þótt ekki væri nema bara til að upplýsa almenning um það sem er kannski ekki almennilega inni í refsivörslukerfinu almennt — það þyrfti að fjalla aðeins um það hvað tekur við á eftir þegar þessum útlendingum er veitt reynslulausn eftir einn þriðja tímans. Hæstv. ráðherra gerir mikið úr því að yfir þeim vofi þá endurkomubann hér. Ég segi að sjálfsögðu, mér finnst annað eiginlega ekki taka nokkru tali. En það þarf að vera alveg skýrt að með þessari reynslulausn erum við að senda menn til síns heimalands eða a.m.k. utan Íslands og við tekur engin frekari refsing. Það er ekki reynslulausn eins og horfir við íslenskum föngum. Þegar þeim er veitt reynslulausn hér á Íslandi þurfa þeir að skrá sig inn, sæta einhverju eftirliti og dvelja í einhverju húsnæði í ákveðinn tíma en hvað varðar þessa reynslulausn sem útlendingum verður veitt, ef ég skil það rétt, þá eru þeir bara farnir og þurfa ekki að afplána eða tékka sig inn neins staðar erlendis þar sem þeir koma. Það gerir það að verkum að aðstöðumunur íslenskra fanga, íslenskra dæmdra manna og útlendra dæmdra manna, verður enn þá meiri heldur en bara samkvæmt orðanna hljóðan er varðar tímalengd refsingar. Þetta finnst mér að þurfi að skoða og koma fram.
Svo vil ég líka benda á að kannski væru aðrar leiðir líka, eins og ég hef nefnt áður, sem við þyrftum að líta til, ekki bara til refsistefnunnar með breytingum á hegningarlögum heldur líka að við veltum því raunverulega fyrir okkur hvort það gæti verið skynsamlegt, til þess að senda skýr skilaboð til þessara útlendu glæpamanna sem eru hérna að fylla fangelsin miðað við tölfræðina sem liggur fyrir, hvort við ættum ekki bara að gera samninga við fangelsi erlendis þar sem þessir menn afplána, hvort við ættum ekki að líta til Litáens kannski eða Albaníu, þannig að menn viti það að verði þeir dæmdir fyrir innflutning á fíkniefnum, hvort sem þeir eru burðardýr eða ekki, þá eigi þeir yfir höfði sér dvöl í fangelsi í þessum löndum og afpláni þar fullum fetum. Ég hygg að það gæti nú orðið mönnum meira til viðvörunar heldur en að senda út þessi skilaboð: Þið þurfið að afplána í miklu skemmri tíma heldur en íslenskir fangar. Það eru engin skilaboð sem fæla útlendinga frá því að fremja glæpi hér á landi. Ég hvet hæstv. ráðherra til að skoða þetta og hv. allsherjar- og menntamálanefnd til þess að spyrjast raunverulega fyrir um möguleikana í þessu, að láta menn afplána erlendis. Í öllu falli segi ég að vilji menn grípa til einhverra tímabundinna aðgerða vegna fangelsanna hér, með því að tappa af fangelsunum, er þá ekki eðlilegt að við töppum af okkar eigin glæpamönnum, að við hleypum íslenskum föngum fyrr út? Ég spyr nú bara og leyfi mér að vera með þessa þjóðerniskennd í þessu, þetta eru þó a.m.k. íslenskir glæpamenn. Ég ætla að leyfa mér að fullyrða líka að þó að menn séu dæmdir þá hygg ég nú að svona heilt yfir, ég leyfi mér að vona það en ég tel mig þó hafa eitthvað fyrir mér í því, stafi Íslendingum örlítið minni hætta af íslenskum brotamönnum heldur en þeim erlendu sem hafa verið að koma hingað með vísan til þeirra dóma sem hafa fallið hér í ofbeldismálum og stórtækum fíkniefnainnflutningi, aðallega í þessum ofbeldisbrotum þar sem áður óþekktum aðferðum er beitt við ofbeldisbrot hér á Íslandi sem aldrei fyrr. Þetta nefni ég og finnst að hv. allsherjar- og menntamálanefnd ætti að skoða.
Svo er eitt að lokum, virðulegur forseti. Hér er lögð áhersla á það að hér sé ekki um skylduákvæði að ræða, ekki frekar en í löggjöfinni í dag. En ég vek athygli hv. allsherjar- og menntamálanefndar á því líka að hér er verið að framselja vald til stjórnsýslunnar og því meiri eftirgjöf sem heimiluð er við afplánun refsidóma, því meira er framsalið. Þetta þarf að skoða í samhengi við það hvort það sé eðlilegt að framselja í raun dómsvald með þessum hætti til stjórnsýslustofnunar sem Fangelsismálastofnun er. Ég hef dregið það í efa lengi að þetta sé eðlilegt fyrirkomulag. Það þyrfti held ég að líta til endurskoðunar á hegningarlögum og lögum um meðferð sakamála, mögulega þannig að dómurum sé gefið færi á að kveða upp úr um reynslulausn fanga. En ég bara bendi á það að þegar er verið að gefa svona mikinn afslátt af refsidómum, einn þriðja, jafnvel fyrir alvarleg brot, er framsalið orðið mjög víðtækt. Þetta þarf að skoða í samhengi við meginreglur í réttarfari hér á landi.
Ég hlakka til 2. umræðu um þetta mál og hlakka til að fá ítarlegt og djúpt nefndarálit frá allsherjar- og menntamálanefnd um þetta mál. Ég hef skilning á málinu og tel að það þurfi auðvitað að grípa til einhverra aðgerða en menn eiga að vera opnir fyrir fleiri lausnum sem væru markvissari heldur en kannski þetta frumvarp er.