157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Mercosur.

444. mál
[16:14]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um heimild til handa ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd fríverslunarsamning milli EFTA-ríkjanna og Mercosur. Mercosur er tollabandalag Argentínu, Brasilíu, Paragvæ og Úrúgvæ.

Fríverslunarviðræður milli EFTA-ríkjanna og Mercosur hófust árið 2017 og lauk um mitt síðasta ár. Samningurinn var undirritaður í Río de Janeiro þann 16. september í fyrra Í greinargerð með þingsályktunartillögunni er gerð grein fyrir helstu þáttum fríverslunarsamningsins við Mercosur. Samningurinn kveður m.a. á um niðurfellingar tolla, markaðsaðgang í þjónustuviðskiptum og fjárfestingum, vernd hugverka, um viðskipti og sjálfbæra þróun, upplýsingagjöf til lítilla og meðalstórra fyrirtækja um tækifæri sem í samningnum felast og um lausn deilumála ef upp koma. Tollar falla niður á allar helstu útflutningsafurðir Íslands til Mercosur-ríkjanna, ýmist strax við gildistöku samningsins eða í áföngum yfir lengra tímabil, niðurfellingin tekin í skrefum yfir fjögur til átta ár. Það má geta þess að tollar sem falla strax niður eru t.d. 9% tollur á laxi og þorski, hann fer strax niður í 0% toll.

Tollaívilnanir Íslands á landbúnaðarvörum eru á sömu nótum og samið hefur verið um á undanförnum árum í öðrum fríverslunarsamningum. Í langflestum tilvikum er um að ræða afurðir sem ekki eru framleiddar á Íslandi og þar af leiðandi ekki í beinni samkeppni við íslenska framleiðslu eins og til að mynda ávextir, tilteknar tegundir grænmetis, hnetur, olíur, plöntur og drykkjarvörur.

Það nýmæli er þó í þessum fríverslunarsamningi að Mercosur-ríkjunum er veittur afsláttur af gjaldi sem tekið er af innflutningi á nautakjöti innan tollkvóta Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Sá kvóti er 95 tonn og hefur verið boðinn út frá árinu 1995 í samræmi við skuldbindingar Íslands innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Með þessu er því ekki veittur aukinn tollkvóti á innflutningi nautakjöts til Íslands heldur gildir sama magn kvóta. Hitt vil ég þó segja að að kvótinn er sá sami en það má leiða að því líkum, við vitum það ekki enn þá, að kjöt einmitt frá Mercosu-ríkjunum muni vega þyngra í samsetningu þessa 95 tonna kvóta sem hefur verið lengi við lýði og verður áfram.

Samningurinn veitir íslenskum fyrirtækjum auknar heimildir til fjárfestinga í Mercosur-ríkjunum og bætir aðgang íslenskra þjónustuveitenda að þjónustumarkaði þeirra.

Í sérstökum kafla um viðskipti og sjálfbæra þróun er að finna ákvæði um mikilvægi kynjasjónarmiða í opinberri stefnumótun. Þá árétta samningsaðilar alþjóðlegar skuldbindingar sínar hvað varðar umhverfisvernd, vinnuvernd og verndun skóglendis. Þetta finnst mér allt vera mikilvægt og gott að verið sé að gæta að þessum sjónarmiðum núna á þessum tímum.

Frú forseti. Fríverslunarsamningur við Mercosur getur haft mikla þýðingu fyrir viðskipta- og efnahagssamband Íslands við Suður Ameríku. Samningurinn bætir samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja og fjárfesta inn á þennan 270 milljóna manna markað og stuðlar að aukinni fjölbreytni í utanríkisviðskiptum Íslands. Samningurinn styrkir einnig pólitísk samskipti Íslands og EFTA-ríkjanna við ríki Mercosur.

Fríverslunarsamningar EFTA-ríkjanna miða að því að bæta aðgang að mörkuðum víðs vegar um heim. Að þessum samningi meðtöldum hafa EFTA-ríkin nú gert 35 fríverslunarsamninga við alls 49 ríki. Við höfum ein og sér gert að mig minnir tvo fríverslunarsamninga og erum samtals með þá ríflega 35 fríverslunarsamninga við 49 ríki. Hér er því á forsendum EFTA um að ræða eitt víðfeðmasta fríverslunarnet sem um getur á heimsvísu, á eftir kannski Evrópusambandinu sem hefur komið í gegn hátt í 60 fríverslunarsamningum við fleiri ríki.

Á tímum aukinnar verndarhyggju í alþjóðaviðskiptum er það mér nú sem fyrr sönn ánægja að standa hér í þingsal í dag og mæla fyrir fullgildingu fríverslunarsamnings sem kveður á um tollalækkanir, afnám viðskiptahindrana og tryggir sanngjarnt og fyrirsjáanlegt viðskiptaumhverfi fyrir íslensk útflutningsfyrirtæki. Það má í rauninni segja að þessi samningur sé eitt skref í því afvopnavæða frjáls viðskipti eins og því miður þróunin hefur verið á umliðnum misserum. Finnst mér þetta vera jákvætt skref í átt að af aukinni fríverslun.

Ég legg til, hæstv. forseti, að tillögunni verði að lokinni þessari umræðu vísað til síðari umræðu og ekki síður til umfjöllunar í utanríkismálanefnd.