þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki.
Forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til nýrra heildarlaga um þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki. Frumvarpið felur í sér tillögu um innleiðingu í íslenskan rétt á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um sama efni. Þegar rætt er um þjónustuveitanda hópfjármögnunar er átt við lögaðila sem leiðir saman á sérstökum vettvangi annars vegar fjárfesta og hins vegar þá sem vilja fjármagna atvinnurekstur sinn. Á slíkum vettvangi er höfð milliganga um lánveitingar og höfð umsjón með útboði á framseljanlegum verðbréfum eða öðrum gerningum sem heimilt er að nota til hópfjármögnunar ásamt móttöku og miðlun fyrirmæla viðskiptavina.
Forseti. Reglugerðin samræmir evrópskar reglur um hópfjármögnunarþjónustu yfir landmæri. Verið er að auðvelda umfangsmikla hópfjármögnunarþjónustu á innri markaði Evrópusambandsins og bæta þannig aðgang frumkvöðla, fyrirtækja í stækkunarferli og lítilla og meðalstórra fyrirtækja að fjármagni. Þá eykur reglugerðin fjárfestavernd og aðgang fjárfesta að nauðsynlegum upplýsingum um hópfjármögnun.
Hér á landi eru ekki til sérstakar reglur um þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki, en almennt regluverk um útlánastarfsemi og verðbréfaviðskipti er auðvitað fyrir hendi. Með tilkomu reglugerðarinnar verður þeim sem veita þjónustu sem hún tekur til skylt að hafa til þess sérstakt leyfi. Meginefni frumvarpsins er lögfesting reglugerðarinnar og gerir frumvarpið ráð fyrir nauðsynlegum ákvæðum varðandi lögfestinguna, til að mynda heimildum Fjármálaeftirlitsins til eftirlits, upplýsingaöflunar og til að beita viðurlögum eftir atvikum.
Í tengslum við lögfestinguna er í frumvarpinu einnig mælt fyrir um nauðsynlegar breytingar á til að mynda lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi þar sem starfsemi þjónustuveitenda hópfjármögnunar verður felld undir eftirlit Fjármálaeftirlitsins og lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka þar sem þjónustuveitendur hópfjármögnunar verða tilkynningarskyldir á grundvelli laganna.
Með frumvarpinu er ekki gengið lengra en lágmarkskröfur reglugerðarinnar kveða á um.
Ekki er gert ráð fyrir teljandi áhrifum á fjárhag ríkisins. Ekki er hægt að útiloka að lagasetningin leiði til útgjalda hjá Fjármálaeftirlitinu sökum eftirlits með þjónustuveitendum hópfjármögnunar. Þau útgjöld yrðu þó minni háttar.
Forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum og legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar.
.