157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[16:42]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir spurninguna. Gert er ráð fyrir, eins og þetta mál er lagt upp, að hér sé um eitt félag að ræða sem hýsi fleiri en eitt verkefni. Þegar hún vísar í orð hæstv. innviðaráðherra þá var ég ekki viðstaddur þá umræðu og get í sjálfu sér ekki tjáð mig um þau orð. Það er ekki útilokað að það gæti reynst hagkvæmt í einhverjum verkefnum að hafa þau í sérstöku félagi. En eins og hugmyndin er núna og eins og hún verður framkvæmd af þessari ríkisstjórn þá snýst þetta um eitt félag og fleiri verkefni.