innviðafélag.
Frú forseti. Gott og vel. Hæstv. ráðherra var ekki viðstaddur en ég fór yfir hvað hæstv. ráðherra, Eyjólfur Ármannsson, sagði. Það sem ég velti þá fyrir mér er að nú hafa lífeyrissjóðir bent á og lagt til að það væri heppilegra að þetta væri í fleiri félögum til að vekja meiri áhuga. Ég velti líka fyrir mér: Hvernig sér hæstv. ráðherra fyrir sér að ætla að draga erlent fjármagn inn í þetta, af því að nú er nokkuð ljóst að það er vinsælt að fjárfesta í innviðaverkefnum, sérstaklega þeim sem líta út fyrir að verða arðbær? Telur hæstv. ráðherra að það verði ekki vesen ef þetta verður í einu félagi, bæði arðbær og óarðbær verkefni, og að það verði minna val um fjármagn sem er tilbúið að koma í verkefnin? Væri ekki nær að ríkissjóður myndi leggja línurnar strax um hvernig hann vill sjá félagið?
Að lokum vil ég spyrja: Kemur til greina að setja önnur félög, eins og Isavia, Landsvirkjun eða önnur félög, inn í þetta? Verður þetta viðbótarskattlagning eða, þar sem þetta er tilfærsla á fjármunum, mun hæstv. ráðherra passa upp á að lækka aðra skatta á móti?