157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[16:46]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka ráðherra fyrir framsöguna og óska honum til hamingju með þetta stóra framfaraskref að koma þessu frumvarpi saman. Eins og ráðherra kom inn á er þetta auðvitað forsenda þess að við getum farið í þessar samgönguframkvæmdir sem eru kynntar í samgönguáætlun. Þetta er auðvitað grunnforsenda þess að það gangi allt upp. Ég veit að margar ríkisstjórnir hafa haft það markmið að reyna að koma saman svona félagi og það er að takast núna. Þess vegna vil ég endurtaka hamingjuóskir til ráðherrans fyrir að hafa náð að koma þessu saman, af því að ég held að þetta sé gríðarlegt framfaraskref. Ég hjó eftir því í greinargerðinni á bls. 4 að þar er hógvært orðalag þar sem segir: „Talsverður ávinningur er af því fyrir þjóðarbúið að samgönguinnviðir verði bættir […].“ Ég myndi segja: Stórkostlegur ávinningur, en allt í góðu.

En mig langar að heyra frá ráðherranum: Með því að hafa þetta C-hluta félag, erum við ekki að gera ráð fyrir að þetta félag búi við sömu lánakjör og ríkissjóður?