innviðafélag.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir fyrirspurnina. Nú þekkjumst við og hún veit að ég er ekki mikið fyrir að nota efsta stigs lýsingarorð nokkurn tímann ef hjá því verður komist nema við sérstök hátíðartilbrigði. En það má svo sem alveg taka undir það að þetta er kannski fullhógværlega orðað.
Varðandi skipulag félagsins sem C-hluta félags þá er öruggt að lánskjör þessa félags verða lakari heldur en ríkissjóðs. Það mun verða einhver munur alveg nákvæmlega eins og er á öðrum C-hluta félögum og ríkissjóði. Það er ekki gert ráð fyrir ríkisábyrgðum á skuldum félagsins. Einhver gæti þá spurt: Hvers vegna að fara í þessa vegferð? Þá vil ég nefna tvennt: Í fyrsta lagi tryggir félagið getuna til að taka langtímaákvarðanir vegna þess að því eru tryggðar langtímatekjur á meðan stærri verkefni eru háð ákvörðunum til skemmri tíma ef þau eru hýst innan Vegagerðarinnar. Hitt er að félagið getur (Forseti hringir.) lagt sterkari áherslu á að (Forseti hringir.) velja lausnir sem eru hagkvæmari heldur en ríkið gerir að jafnaði, þ.e. gera stífari kröfur (Forseti hringir.) á útfærslur og tímasetningar til að lágmarka kostnað við framkvæmd.