157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[16:49]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka ráðherra fyrir gott svar. Mig langar í seinna andsvari mínu að ræða við hann varðandi ákveðna þekkingaryfirfærslu sem þarf að vera milli Vegagerðarinnar og innviðafélagsins. Af því að það hefur t.d. ekki verið farið í jarðgöng frá því að Dýrafjarðargöng voru tekin í notkun árið 2020, hefur hann einhverjar áhyggjur af því að þekking og geta í mannvirkjagerð hafi bara hrapað niður í ljósi þess að ekkert hefur verið gert hérna síðustu árin? Ég held að það sé alveg ljóst að það þurfa að vera dálítið skýr skil milli þess hvaða verkefni verða á borði Vegagerðarinnar og hvaða verkefni verða á borði innviðafélagsins. Mig langar að fá hann til að fara aðeins yfir hvernig þetta verður með þekkingaryfirfærsluna og getuna og annað því tengt svo þetta gangi allt snurðulaust fyrir sig.