innviðafélag.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir aðra mjög góða spurningu. Þetta er mikil áskorun. Ísland er ekki stórt samfélag og reynslan af C-hluta félögum ríkisins er upp og ofan hvað varðar það hversu vel þeim hefur gengið að uppfylla tilgang sinn, einmitt vegna þess að það tekur tíma að byggja upp þekkingu. En nú er það reynsla sumra af okkar bestu félögum einmitt að viðurkenna þessa áskorun og leita þekkingar. Það er auðvitað þannig að gangagerð, vegagerð og brúarsmíði er stunduð um allan heim, alveg eins og rekstur flugvalla og uppbygging vatnsaflsvirkjana. Og þá hefur reynslan sýnt að það að sækja þessa þekkingu og fyrst og fremst að inni í félaginu sé þekkingin til verkefnisstjórnar og hvert hægt er að sækja þessa þekkingu raunverulega lykilatriðið. En ég er mjög meðvitaður um að það skiptir öllu máli að það taki ekki mörg ár að byggja upp þekkinguna. Við þurfum að geta tryggt það að félagið lendi hlaupandi.