innviðafélag.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir sína framsögu á þessu máli sem er auðvitað mikilvægt fyrir íslenskt samfélag. Ég hef áhuga á að spyrja hæstv. ráðherra aðeins út í rekstrarforsendur innviðafélagsins og misvísandi skilaboð sem hafa komið frá ríkisstjórninni hvað það varðar. Í frumvarpinu er fjallað um að leggja þurfi félaginu til 75 milljarða kr. framlög til að fjárhagsleg skilyrði haldi. Svo er það rætt í frumvarpinu að unnt sé að mæta því með því að leggja félaginu til Vaðlaheiðargöng, Hornafjarðarfljót og einnig að leggja félaginu til önnur mannvirki, þegar byggð mannvirki, og hefja þar gjaldtöku sem hefur ekki verið. Í því sambandi er vísað í Hvalfjarðargöngin annars vegar og svo hins vegar líka í Reykjanesbraut og Suðurlandsveg. Þá vil ég spyrja ráðherrann í ljósi ummæla hæstv. orkumálaráðherra Jóhanns Páls Jóhannssonar um að slík áform séu þvættingur og moldviðri út af engu, að það séu engin áform um neitt í þessa veru og að slíkt hafi aldrei verið rætt í ríkisstjórn. Næsta mál, sagði ráðherrann. Ég spyr því fjármálaráðherra: Hvað er rétt í þessu sambandi?