innviðafélag.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir spurninguna og fyrir að veita mér tækifæri til að svara henni. Ég held að misskilningurinn felist í því að þarna er þá annars vegar verið að gefa í skyn gjaldtöku á mannvirkjunum óbreyttum og hins vegar þann möguleika að það sé hægt að flýta endurbótum á standandi mannvirkjum. Það er nauðsynlegt að við gerum ráð fyrir því að standandi mannvirki geti farið inn í félagið í tengslum við uppbyggingarverkefni. Ef við nefnum alveg sérstaklega Hvalfjarðargöngin þá er ljóst að á komandi árum mun þurfa að ráðast í tvöföldun Hvalfjarðarganga og það verður alveg örugglega gert þannig að gjaldtaka verði í báðar áttir, bæði í eldri göngin og nýrri göngin þegar sú gjaldtaka verður hafin, án þess að ég sé í fullri aðstöðu til að fullyrða það í ljósi þess að það er ólíklegt að ég komi að þeim ákvörðunum.