157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[16:57]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Ég ætla að vinda mér strax í spurningar í ljósi þess hversu stuttur tíminn er. Í fyrsta lagi vil ég biðja ráðherra að svara spurningum sem hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir lagði fyrir ráðherrann sem varða annars vegar það hvort aðrir skattar og gjöld verði lækkuð að hluta eða öllu leyti á móti þeim nýju tekjum sem þarna koma inn eða hvort þetta verði hrein viðbót við þegar til komna gjaldtöku og skatta á akstur og ökutæki. Hins vegar er það varðandi hlutaféð. Það er svigrúm varðandi það með hvaða hætti hlutafé verður lagt inn í þetta nýja innviðafélag og mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvað hann sjái fyrir sér í þessum efnum. Sér hæstv. ráðherra t.d. fyrir sér að það sé mögulegt að hlutur í fyrirtækjum eins og Isavia verði lagður þarna inn sem hlutafjárframlag ríkisins? Ég ætla að láta þetta duga í fyrri umferð og bæti við spurningu í seinni ef svör berast.