157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[16:58]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir spurninguna. Þau verkefni sem búið var að taka ákvörðun um að yrði gjaldtaka í, og þá erum við að tala um Ölfusárbrú og Hornafjarðarfljót, lágu þegar fyrir og eru bara hluti af heildarfjáröflun og ekki var gert ráð fyrir neinum öðrum breytingum tengdum því. Varðandi möguleika á hlutafjárinnspýtingu þá hefur ekki komið neitt til tals, og raunar kannski svolítið erfitt að sjá samlegðaráhrifin í fljótu bragði af því að leggja Isavia þarna inn. En vissulega hefur verið rætt að leggja innviði eins og t.d. Vaðlaheiðargöng sem væru þá hluti af hlutafjárinnspýtingu inn í félagið.