157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[16:59]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ég vil bæta við tveimur spurningum í lokin. Annars vegar varðandi það hvort sjónarmiða Seðlabankans hafi verið aflað varðandi þennan undirbúning, þá út frá svona ríkisábyrgðarsjónarmiðum, þeirri stöðu sem vísað er til í umsögn Landssamtaka lífeyrissjóða varðandi skýrleika ríkisábyrgðarhlutans og þar fram eftir götunum. Hins vegar langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra út í sjónarmið Akraneskaupstaðar sem komu fram í samráðsgátt stjórnvalda þar sem segir, með leyfi forseta, í niðurlagi umsagnar þar sem Akraneskaupstaður leggur áherslu á að ekki verði innheimt veggjöld af samgöngumannvirkjum sem þegar hafa verið byggð og þeim mannvirkjum sem þegar hafa verið greidd af notendum. Þarna er augljóslega verið að tala um Hvalfjarðargöng þannig að ég vil spyrja annars vegar um samskipti við Seðlabankann og mat á því er varðar ríkisábyrgðir og fjármögnun utan efnahagsreiknings og hins vegar þessi sjónarmið Akraneskaupstaðar varðandi það að Hvalfjarðargöng verði undirorpin gjaldtöku á nýjan leik.