157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[17:00]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir skynsamlegar spurningar. Ekki er gert ráð fyrir ríkisábyrgðum á skuldum félagsins. Eins og þingheimur veit þá hefur núna verið aflétt megninu af þeim ríkisábyrgðum sem voru með uppgjörinu á ÍL-sjóði. Ég held að það sé vel og ég held að það að bæta þar í sé ekki góð hugmynd. Ég hef þegar í svörum mínum til hv. þm. Sigurðar Arnar Hilmarssonar svarað því að gjaldtaka í Hvalfjarðargöngum myndi tengjast tvöföldun þeirra sem vissulega hefur verið rædd en einu skilyrðin þar sem hafin yrði gjaldtaka í standandi mannvirkjum er þegar það er hluti af endurbótum á þeim og þá til að greiða fyrir þær endurbætur.