157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[17:01]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna og óska honum til hamingju með þetta frumvarp sem hér er lagt fram. Það voru umræður á fyrsta þingi þessarar ríkisstjórnar um mikið samráð, m.a. við stjórnarandstöðu, hvað ramma þessa máls varðar en það varð lítið úr eins og stundum vill verða. En hér erum við mætt og getum ekki annað. Mér þykir strax stefna í alveg gríðarlega umfangsmikla gjaldtöku af akstri og ökutækjum ef við horfum heildstætt á þá mynd sem er að teiknast upp. Við sjáum nú þegar fyrir með hversu afgerandi hætti og miklu umfangi akstur og ökutæki eru gjaldlögð í dag með ýmsum gjöldum og sköttum. Þó að við höldum virðisaukaskattinum alveg til hliðar eru skattar og gjöld af ökutækjum og akstri umtalsvert hærri en varið er til nýframkvæmda, endurbóta og viðhalds á vegakerfinu. Þær tölur liggja fyrir. Nú sýnist mér einhvers lags viðbótarkostnaðarlög eitt af öðru bætast á þegar mjög gjald- og skattpínda ökumenn landsins.

Það eru samvinnuverkefnin, ef ég skil svar hæstv. ráðherra við andsvari mínu rétt, þegar ákveðin verkefni í samvinnu gegnum löggjöf um samvinnuverkefni falla þar undir. Mér gafst ekki tími til að spyrja hvort þegar til komin jarðgöng verði undirorpin gjaldtöku í þessu samhengi, því að vissulega eru þau inni á efnahagsreikningi ríkissjóðs eins og þau koma fyrir, eða hvort það eru bara Hvalfjarðargöngin sem þarna eru undir af þeim göngum sem þegar hafa verið grafin.

Síðan erum við auðvitað með verkefni inni í þessum samstarfsverkefnum, það er auðvitað Sundabrautin, göng undir Reynisfjall, komi þau til, það er Ölfusárbrú, ef ég man rétt, og tengingin, þverun Hornafjarðarfljóts. Ég er svona í fljótu bragði að gleyma — ætli það sé ekki breikkun Hvalfjarðarganga og þá held ég að ég sé að gleyma einu verkefni. Ef þetta er allt saman hrein viðbót, vegagjöld sem þessu tengjast ofan á þegar tilkomna gjaldtöku, þá erum við að horfa á einhvers lags heimsmet í gjaldtöku af akstri og ökutækjum. Ofan á þetta bætast síðan tafagjöld samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem ég bíð enn mjög spenntur eftir að sjá hvernig verða útfærð. Ég hef ekki skilið það öðruvísi en svo að þau gjöld verði hrein viðbót ofan á þegar til komna gjaldtöku. Ökumenn landsins munu standa fyrir einhvers lags þríþraut kostnaðarlega. Það eru núverandi gjaldstofnar, það eru samvinnuverkefnin, það er borgarlínan og samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins — fyrirgefið, þetta er fjórfalt — og þetta mál.

Hæstv. ráðherra, hefur verið framkvæmt eitthvert heildarmat á því með hvaða hætti þessi gjaldtaka lítur út? Nú vísaði hæstv. ráðherra sérstaklega til þess að þetta félag gæti horft til lengri tíma en nú er hvað varðar samgönguáætlun og fjármálaáætlun til 5 ára. Mér finnst vanta að það sé reynt að ná utan um þá heildarmynd sem blasir við landsmönnum ef við horfum til næstu 10–20 ára þar sem þessi gjaldtaka bætist ofan á hina hefðbundnu sem fyrir er, samvinnuverkefnin, tafagjöld borgarlínu og samgöngusáttmála og mögulega þegar til komin jarðgöng, þó að það sé svo margt óljóst í þessu enn þá að það gæti vel verið að þeim verði skautað hér inn í þetta félag. Sjáum til hvernig það verkast.

Það er nú bara þannig að í umsögn Samtaka atvinnulífsins í samráðsgátt er — lengi skal manninn reyna — millifyrirsögn hér, ein af fjórum, fimm, með leyfi forseta: „Upplýsingaóreiða um fjármögnun innviðauppbyggingar.“ Þetta er auðvitað ekki góður staður til að byrja á þegar Samtök atvinnulífsins telja sig þurfa að lýsa framkomnum drögum að frumvarpi með þeim hætti að þar sé undir upplýsingaóreiða um fjármögnun innviðauppbyggingar í því máli sem þar liggur til kynningar.

Þetta passar að nokkru marki við það sem Landssamband lífeyrissjóða segir í umsögn sinni. Þar segir, með leyfi forseta:

„Samkvæmt greinargerð með frumvarpinu kemur til greina að félagið taki lán á almennum markaði með ríkisábyrgð.“ — Það er það sem stendur í greinargerðinni. Ég var ánægður að heyra svar hæstv. ráðherra hér áðan en það breytir því ekki að þetta stendur — ja, ég þarf nú kannski að fletta því upp hvort þetta hafi verið fellt út. Ráðherra leiðréttir mig ef svo er. En hér segir í umsögn Landssambands lífeyrissjóða:

„Samkvæmt greinargerð með frumvarpinu kemur til greina að félagið taki lán á almennum markaði með ríkisábyrgð. Landssamband lífeyrissjóða leggur áherslu á að verði af útgáfu slíks skuldabréfs er mikilvægt fyrir trúverðugleika og traust að skilmálar ríkisábyrgðarinnar séu skýrir frá upphafi. Draga verður lærdóm af máli ÍL-sjóðs.“

Ég hef ekki skoðað þetta atriði sérstaklega í frumvarpinu eins og það liggur fyrir, en hæstv. ráðherra upplýsir kannski um það ef þetta var skýrt frá frumvarpsdrögunum í samráðsgátt til framlagningar plaggsins sem við ræðum núna því að þetta skiptir gríðarlega miklu máli. En aftur að því sem Samtök atvinnulífsins nefna í umsögn sinni. Hér er næsta millifyrirsögn sem segir, með leyfi forseta: „Engin hagræðing hjá Vegagerð?“ Þetta þýðir auðvitað að með einum eða öðrum hætti sjái menn fyrir sér að búa til nýjar Betri samgöngur ohf. Það hefur nú gengið eins og það hefur gengið hingað til eftir stofnsetningu þess apparats í kjölfar þess að samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins var undirritaður 26. september 2019 og síðan uppfærður 2024, ef ég man rétt. Það hefur ekki gengið alls kostar vel og mjög erfitt fyrir kjörna fulltrúa að fá upplýsingar sem kallað er eftir.

Er það raunverulega þannig að það eigi að búa til nýtt svona hliðarfyrirtæki sem verður með sambærilegan strúktúr og Betri samgöngur ohf. er með? Mér þykja sporin hræða í þeim efnum sem er í öllu falli mikilvægt að sé skýrt hér í meðförum þessa máls í þinginu. Hvernig akkúrat sjá menn fyrir sér að þetta atvikist í ljósi þess að menn sjá ekki fyrir sér hagræðingu hjá Vegagerðinni? Það verður til nýtt apparat þarna til hliðar sem er, eða ég lít svo á, þangað til annað kemur í ljós, að verði sambærilegt Betri samgöngum ohf. Menn segja til að róa sig: Ja, verður þetta ekki miklu líkara Speli? Það er fyrirtæki sem ég þekki mjög vel frá fyrri tíð. Sporin hræða, segi ég aftur. Það er mun líklegra að þetta verði líkt Betri samgöngum ohf. heldur en Speli á sínum tíma. Ég held að það blasi við. Í umsögn Samtaka atvinnulífsins er haldið áfram með millifyrirsögninni „Margt enn óljóst“ þar sem segir, með leyfi forseta:

„[M]örgum grundvallarspurningum um skipulag og umgjörð félagsins er enn ósvarað. Því er illmögulegt að taka afdráttarlausa afstöðu til útfærslu innviðafélagsins.“

Þarna eru aðilar að tala sem eru nú aldeilis peppaðir fyrir framkvæmdum, bara svo því sé haldið til haga. Miðað við það sem ég hef borið saman á plagginu sem lá í samráðsgátt og frumvarpinu sem hér liggur fyrir þá er nú líklegt að plaggið sé í meginatriðum eins, því að samráðskaflinn er sá stysti, nr. 5 hér í greinargerð frumvarpsins, og hann er mjög knappur. Þar er bara sagt frá því að alls hafi borist fjórar umsagnir. Ég opnaði nú, held ég, einar tíu þegar ég opnaði skjalið áðan. Ég átta mig ekki alveg á hvernig það misræmi er tilkomið. Það er nú kannski ekki fjallaðí löngu máli um viðbrögð við þeim umsögnum sem bárust. Þetta er auðvitað eitthvað sem hv. umhverfis- og samgöngunefnd — afsakið, hér stendur aðeins síðar í textanum: „Samtals bárust tíu umsagnir um frumvarpsdrögin.“ Það passar við það sem ég sá. Í öllu falli virðast ekki hafa verið gerðar miklar breytingar á málinu frá framlagningu í samráðsgátt.

Af því að ég sagði áðan að sporin hræddu varðandi það að hér yrði búið til nýtt félag um Betri samgöngur ohf.; Betri samgöngur II, gæti það heitið. Í umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar er einmitt ein millifyrirsögnin „Sporin vekja ugg“ þar sem segir, með leyfi forseta:

„Nýliðin upptaka kílómetragjalds hefur vægast sagt farið hörmulega af stað og innheimta mikið klúður þrátt fyrir að kílómetragjald hafi að hluta verið í gildi í tvö ár.“— Svo heldur þetta áfram.

Þetta er einmitt málið: Sporin hræða. Það hefur ekki gengið alls kostar vel nema hjá Speli sem var afskaplega vel heppnað verkefni; frábært fyrirtæki, áform stóðust, áætlanir stóðust og verkefnið gekk upp. En þeim hefur ekki verið mikið fleiri til að dreifa í þessu samhengi um allnokkra hríð, því miður. Það sem helst blasir við okkur núna, verkefni Betri samgangna ohf., verður ekki til að róa nokkurn mann.

Mig langar síðan hér til að klára það sem ég vil nefna úr umsögnum úr samráðsgátt. Hérna er umsögn Akraneskaupstaðar sem reifar málið ágætlega en heldur því síðan til haga í niðurlagi, með leyfi forseta, þar sem segir:

„Akraneskaupstaður leggur sérstaka áherslu á nokkur atriði sem algjöra forsendu fyrir því að góður framgangur geti orðið í kjölfar þess að innviðafélagið geti byggt upp traust á starfsemi sína.“

Þetta eru þeir aðilar, Akranesbær og kjörnir fulltrúar þar — sem hafa kannski haft hvað gleggsta yfirsýn yfir framgang Spalar og þess verkefnis frá því að göngin voru opnuð á sínum tíma. En hér segir í fyrsta liðnum sem þarna er undir, og ég ætla að láta það duga í þessari umferð vegna tímaskorts, og bæjarstjórn Akraneskaupstaðar bendir á er, með leyfi forseta:

„Að ekki verði innheimt veggjöld af samgöngumannvirkjum sem þegar hafa verið byggð og þeim mannvirkjum sem þegar hafa verið greidd af notendum.“

Þarna er auðvitað, þó að það sé ekki sagt beinum orðum, verið að fjalla um Hvalfjarðargöng. Hæstv. ráðherra sagði áðan að það yrði gjaldtaka á grundvelli viðbótarinnar; breikkunar ganganna, tvöföldunar eða hvað sem við köllum það. Þá vaknar spurningin, af því að nú hefur komið fram að ráðherra sér fyrir sér að þetta verði eitt félag með mörgum verkefnum innan borðs: Hvernig sér hæstv. ráðherra fyrir sér, og þetta er eitthvað sem hv. umhverfis- og samgöngunefnd verður að kafa ofan í, að þarna verði skilið á milli?

Forveri hæstv. fjármálaráðherra í embætti lýsti því svo að peningar gætu verið eins og hveiti í krús, það væri erfitt að þekkja hveitikornin á milli eftir að þau blandast saman. Ég held að það verði mjög erfitt að t.d. verðleggja notkun Hvalfjarðarganga þannig að sú tekjuöflun eigi bara að standa undir þeirri tilteknu viðbót. Það er miklu líklegra að verkefni eins og Hvalfjarðargöng, og eftir atvikum Sundabraut, fjármagni verkefni sem minni arðsemi er af. Það er bara hægt að taka pólitíska ákvörðun um það. En þá eigum við líka bara segja það og ekki að fara í neinn feluleik með það. Það er það sem ég vil ráðleggja þeim sem sitja í umhverfis- og samgöngunefnd að glöggva sig á, bara hvernig … (Gripið fram í: Fjárlaganefnd.) — Afsakið, auðvitað fer þetta fyrir fjárlaganefnd. Ég ráðlegg fjárlaganefnd þess heldur að glöggva sig á því hvernig akkúrat verður skilið þar á milli, sérstaklega í ljósi svars hæstv. ráðherra rétt áðan í andsvari þar sem kom fram að gjaldtakan yrði réttlætt með viðbótinni, nýju göngunum, ef við köllum það það til einföldunar.

Tíminn er að hlaupa frá mér. Ég vil halda hér til haga og það þarf að kalla eftir ítarlegri upplýsingum í þá veruna með hvaða hætti stjórnvöld sjá fyrir sér að fjármagna félagið; hvaðan hlutafé kemur og hvaðan menn sjá fyrir sér að bæta við viðbótarhlutafé. Hæstv. ráðherra svaraði því til hér áðan að hann sæi ekki augljósa samleið í því að hlutur Isavia færi þarna inn. Engu að síður skiptir máli í því ljósi að þingmenn fái þá einhverja frekari línu um það hvað stjórnvöld sjá fyrir sér að leggja þarna inn annað en Hvalfjarðargöng og vafalaust Vaðlaheiðargöng. Á endanum þurfa þetta heildstætt að vera verkefni sem að viðbættu tekjustreymi úr samgönguáætlun hvers tíma standa undir heildarmyndinni.

Það er það sem mér þykir vanta á, að greinargerðin leiði fram með hvaða hætti (Forseti hringir.) sú mynd verður teiknuð upp. Ég er mikill áhugamaður um verklegar framkvæmdir þannig að ég vona að þetta gangi vel. Það má ekki taka þetta sem svo að ég sé að leggjast gegn (Forseti hringir.) því að leitað sé leiða til að auka í framkvæmdir á Íslandi. Það er ekki þannig. Ég bara óttast að hér sé, og sérstaklega í ljósi þess með hvaða hætti (Forseti hringir.) tekist hefur til hjá Betri samgöngum ohf., mögulega ekki verið að hugsa málið alveg til enda, sem getur orðið til mikilla vandræða síðar meir.

(Forseti (KÁB): Forseti vill minna á að virða ræðutímann.)