innviðafélag.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir ræðuna. Ég á aðeins erfitt með að átta mig á afstöðu hans vegna þess að hv. þingmaður slær aðeins í og úr. Hann virðist fyrst vera alfarið mótfallinn fyrirkomulagi sem þessu, þ.e. að fjármagna innviðaverkefni með gjaldtöku. En ég vil minna hv. þingmann á að gjald er þá eitthvað sem ökumönnum er frjálst að greiða eða ekki og það er í öllum tilfellum þannig í þeim mannvirkjum þar sem rukkað er með þessum hætti að það eru í boði hjáleiðir. Ég hygg að hann sjálfur, sem íbúi Borgarness, ef ég fer ekki rangt með, (Gripið fram í.) hafi nýtt sér Hvalfjarðargöngin sem voru fjármögnuð með þessum hætti. Mig langar þess vegna til að spyrja alveg konkret: Er hv. þingmaður andsnúinn þessu fyrirkomulagi sem nágrannalöndin hafa verið að taka upp með svo góðum árangri, að koma svona framkvæmdum, sem geta staðið undir sér, inn í sérstök félög?