157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[17:18]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra andsvarið. Stutta svarið er nei, ég er ekki kategórískt mótfallinn því, en ég geri kröfu um að sjá heildarmyndina. Hvalfjarðargöngin eru, held ég, best heppnaða vegaframkvæmd, samgönguframkvæmd, sem við höfum farið í hérna heima. En það skiptir máli, og það hafa oft verið svona meginrökin að mínu mati fyrir því að ganga til þess að innleiða hér veggjöld, að þau séu að ná til einskiptisnotendanna, ferðamannanna, þeirra sem nota kannski vegina að einhverju marki sjaldnar, þá sé annað gjald fyrir þá sem fara sjaldnar um heldur en þá sem nota þá í miklum mæli. Ég held að ferðamenn hafi borgað um 30–40% heildargjalda í Hvalfjarðargöngunum í gegnum tíðina. Það er áhugavert að ná slíkum viðbótartekjum inn. En ef þetta kemur inn sem hrein viðbót gagnvart allri annarri gjaldtöku þá sjáum við ekkert annað en það augljósa; hreina viðbót ofan á þegar mjög hátt gjaldlagða notkun af akstri og ökutækjum.